Farðu í vöruupplýsingar
1 af 4

Lopidraumur

Gára – Ripple – Íslenskt teppi úr endurunni ull.

Gára – Ripple – Íslenskt teppi úr endurunni ull.

Venjulegt verð 11.993 ISK
Venjulegt verð 15.990 ISK Söluverð 11.993 ISK
Útsala Uppselt

Price includes VAT (Iceland)

Taxes included. Sending reiknuð við kassa.
Magn

Gára eða Ripple:

Þetta teppi er gert úr tveimur hlutum endurunninni ull og einum hluta nýrri ull. Ullin er 100% íslensk og kemur frá ÍSTEX, sem safnar og vinnur megnið af íslenskri ull. 

Íslensk ull er einstök afurð úr íslenskri sveit og átti stóran þátt í að tryggja afkomu þjóðarinnar og var um tíma ein helsta útflutningsvaran í formið vaðmáls.  Íslenska ullin er náttúrulega einstök afurð og hefur þá sérstöðu að vera samsett úr tveimur mismunandi þráðum: þel, sem eru innri trefjarnar eru fínar, mjúkar og mjög einangrandi, en ytri trefjarnar sem nefnast tog, eru langar, gljáandi og hrinda frá sér vatni. Vörur úr íslenskri ull eru því einstaklega endingargóðar, léttar, anda vel og eru hlýjar. 

 Íslensk ull – náttúrulega hlý frá árinu 874

 

Af hverju íslensk ull? 

Uppruna íslensku sauðkindarinnar má rekja til landnámsins árið 874. Vegna afskekktrar legu landsins í Norður-Atlantshafi hefur íslenska fjárkynið haldist nánast óbreytt í meira en 1.100 ár.  Harðbýlar aðstæður og einangraður stofn gerðu það svo að verkum að íslenska sauðkindina þróaðist í takt við umhverfið og með markvissu kynbótastarfi urðu til þeir einstöku eiginleikar íslenskrar ullar sem gera hana að sannkölluðu náttúruundri.  Ullin er tvílaga, með tveimur ólíkum trefjaþráðum sem nefnast „tog“ og „þel“:    

Tog eru lengri ytri trefjarnar sem veita styrk. Þær eru langar og gljáandi og hrinda einnig frá sér vatni. 

Þel er fíni undirullin sem heldur í sér lofti, er náttúrulega fjaðurmögnuð og einangrar gegn veðri og vindum án þess að vera þung.

Þessar tvær trefjagerðir saman gera íslenska ull svo einstaka að hún heldur einangrunareiginleikum sínum jafnvel þegar hún blotnar.  Þá hrindir hún frá sér lykt og óhreinindum og þarf því sjaldnar að þvo ullina en mörg önnur efni.   

Ullin kemur úr íslenskum sveitum, þar sem kindurnar ganga frjálsar á sumrin í kjöraðstæðum íslenskrar náttúru.  Íslenskur landbúnaður notar nær engin varnarefnanotkun* (skordýra- eða illgresaseyðar), þannig að engar leifar eða skaðleg efni finnast í íslenskri ull. Ullin er meira að segja þvegin með hita frá jarðhitasvæðum og rafmagni frá endurnýjanlegum orkugjöfum.  

 Þess vegna er íslensk ull náttúrulega valið. 

 * Hvað eigum við við þegar við segjum að engin skordýra- eða illgresiseyðandi efni séu notuð?  Samkvæmt Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) er notkun skordýra- og illgresiseyða á hvern hektara langminnst á Íslandi af öllum Evrópulöndum. Næsta Norðurlandaþjóð notar meira en 40 sinnum meira en Ísland.  Sjá nánar hér: https://www.fao.org/faostat/en/#data/RP

 

Skoða allar upplýsingar