Um okkur

Lopidraumur

Lopidraumur

Lopidraumur er vörulína á vegum Ístex. Okkar markmið er að framleiða hágæða sængur úr 100% íslenskri ull sem eru umhverfisvænar og sjálfbærar. Ístex kaupir ullina beint frá bændum og er hún þvegin í þvottastöð Ístex á Blönduósi. Ullin er STANDARD 100 by OEKO-TEX® vottuð.

Íslenska ullin

Íslenska ullin hefur þróast í 1100 ár í köldu,  norðlægu loftslagi og býr þess vegna yfir einstakri samsetningu innri og ytri þráða. Þelið er fíngert, mjúkt og óreglulega liðað. Það verndar féið gegn kulda. Togið er lengra, slétt og harðgert. Það veitir vörn gegn vatni og vindum. Þegar tog og þel er unnið saman verður til hinn einstaki Lopi sem Lopidraumur sækir styrk sinn í.

Ullin hefur þann eiginleika að halda einstöku raka- og hitajafnvægi. Þessi öndunareiginleiki leggur grunninn að þægilegum svefni. 

Íslenska sauðkindin

Íslenska sauðkindin hefur fylgt Íslendingum frá landnámi. Stofninn hefur haldist einangraður í gegnum aldirnar og er einstakur.

Á Íslandi eru 400-500 þúsund fjár og meðalbú með 200-300 kindur. Mikið og öflugt eftirlit er með velferð sauðfjár á Íslandi. Féð gengur ekki auðveldlega úr reyfinu og því er rúningur mikilvægur hluti af velferð þeirra. Flestir velja að rýja tvisvar á ári, að hausti og vori.

Íslenska sauðkindin heitir Ovis aries borealis á latínu.

Velferð dýra

Reglugerð um velferð sauðfjár er mjög ströng á Íslandi, bæði hvað varðar sjúkdóma og meðhöndlun dýra.  Yfir sumartímann fær sauðfé að ganga frjálst um fjöllin og njóta íslenskrar veðráttu. Rúningur fer fram á bóndabæjum undir eftirliti bóndans sem ber velferð dýra sinna fyrir brjósti.

Nánari upplýsingar má finna hér Matvælastofnun, MAST

Fyrirtækið

Ístex

Ístex hf. rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og bandverksmiðju í Mosfellsbæ. Ullarvinnsla í Mosfellsbæ hefur staðið samfleytt frá árinu 1896, áður undir nafninu Álafoss. Ístex hf tók við starfseminni árið 1991. Bændur eiga 80% hlut í Ístex.

Ístex kaupir ull beint frá bændum en félagið þvær og meðhöndlar um 99% af allri íslenskri ull. Ístex miðar að því að lágmarka umhverfisáhrif sín.

Nánar um Ístex má finna hér