Embla barnasæng
Embla barnasæng
EMBLA barnasæng er heilsárssæng sem er náttúrulegur kostur fyrir heilnæman svefn. Sængin er létt og viðheldur þægilegu og réttu rakastigi. Íslenska ullin er sérstök vegna öndunareiginleika hennar og hversu temprandi hún er.
Hentar vel fyrir þá sem kjósa náttúrulegar og sjálfbærar vörur.
Sængin er ætluð börnum frá 3 ára aldri.
Lopidraumur vörurnar eru framleiddar á umhverfisvænan hátt með lágt kolefnisspor.
Kostir
Rannsóknir sýna að ullarvörur bæta svefninn. Ullin í sængunum er kembd þannig að meira loftrými myndast milli þráðanna sem gefur einstaka einangrun. Ullin býr yfir þeim eiginleikum að geta dregið í sig raka, allt að 30% af eigin þyngd. Ullin flytur því hita og raka til og frá líkamanum og viðheldur réttu og þægilegu hitastigi.
Gott að vita
- Íslensk ull
- Sjálfbærni
- Temprandi
- Umhverfisvæn
- Auðvelt að þvo
- Létt og andar vel
- STANDARD 100 by OEKO-TEX®
Tæknilegar upplýsingar
Stærð og Heildarþyngd (100% Íslensk ull)
- 100 x 140 cm: 0.5 kg fyllingu